Heimabakað brauð á 5 mínútum á dag
Þessi uppskrift er skemmtileg því hún býður upp á þann valmöguleika að vera með heimabakað brauð á hverjum degi. 3 bollar volgt vatn 1 1/2 msk ger 1 1/2 msk sjávar salt 6 1/2 bolli hveiti Taktu fram stóra skál, helst 5-6 lítra, og heltu vatninu í hana. Heltu svo gerinu og saltinu út í vatnið og öllu hveitinu þar á eftir. Hrærðu lauslega með trésleif (eða dönskum deig þeytara ef þú býrð svo vel að eiga þannig). Deigið á að vera gróft og kekkjótt. Lokaðu nú ílátinu með loki eða plast filmu (gerðu nokkur lítil göt á hana) og láttu standa í stofuhita í 2 tíma. Ekki berja deigið niður, það hefast mikið og á að gera það. Settu deigið inn í ísskáp og næsta dag verður það búið að "falla" talsvert, þetta er líka alveg eðlilegt. Stráðu smá hveiti yfir deigið til að það festist síður við hendurnar á þér og klipptu af svona 500 gramma stykki af og látu deigið jafna sig í 40 mínútur á bökunarpappír (það má líka bíða í 60-90 mínútur, brauðið verður þá holóttra). Hitaðu ofn...