Heimabakað brauð á 5 mínútum á dag

Þessi uppskrift er skemmtileg því hún býður upp á þann valmöguleika að vera með heimabakað brauð á hverjum degi.

  • 3 bollar volgt vatn
  • 1 1/2 msk ger
  • 1 1/2 msk sjávar salt
  • 6 1/2 bolli hveiti

Taktu fram stóra skál, helst 5-6 lítra, og heltu vatninu í hana. Heltu svo gerinu og saltinu út í vatnið og öllu hveitinu þar á eftir. Hrærðu lauslega með trésleif (eða dönskum deig þeytara ef þú býrð svo vel að eiga þannig). Deigið á að vera gróft og kekkjótt.
Lokaðu nú ílátinu með loki eða plast filmu (gerðu nokkur lítil göt á hana) og láttu standa í stofuhita í 2 tíma.
Ekki berja deigið niður, það hefast mikið og á að gera það.
Settu deigið inn í ísskáp og næsta dag verður það búið að "falla" talsvert, þetta er líka alveg eðlilegt.

Stráðu smá hveiti yfir deigið til að það festist síður við hendurnar á þér og klipptu af svona 500 gramma stykki af og látu deigið jafna sig í 40 mínútur á bökunarpappír (það má líka bíða í 60-90 mínútur, brauðið verður þá holóttra).
Hitaðu ofninn í 230°c og hafðu bökunarplötu inn í honum miðjum (ef þú ert fancy og átt deig þeytara þá áttu kannski líka bökunar stein, notaðu hann þá) og ofnskúffu í botninum.

Skerðu 1 cm djúpar rákir í brauðið ofanvert (þetta er til að hleifurinn haldi lagi sínu betur), renndu bökunarpappírnum á bökunarplötuna og bættu 1 bolla af heitu vatni í ofnskúffuna í botninum.
Bakist í 30-35 mínútur.
Gott er að taka bökunarpappírinn undan síðustu 5-10 mínúturnar til að botninn verði líka stökkur.
Látið kólna næstum alveg áður en brauðið er borðað!

Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur