Posts

Showing posts from May, 2011

Kjúklingur í salsasósu

Þessi réttur er úr bókinni "Hvorki meira né minna" eftir Fanney Rut Elínardóttur og er hugsaður fyrir einn. 1 kjúklingabringa 2 tsk. paprikukrydd 1/2 tsk. chilli krydd salt og pipar eftir smekk olía til steikingar 50 gr. ostur Kjúklingabringan er krydduð með paprikudufti, chilli, salti og pipar. Steikt á pönnu í 5 mínútur til að loka henni og svo steikt þar til hún er næstum alveg full elduð. Þá er hún sett í eldfast mót, salsa sósan sett ofan á og ostur yfir það. Bakað á 180°c þar til bringurnar eru eldaðar í gegn og osturinn bráðnaður. Salsasósa: 3-4 tómatar, gróft skorninr 1 rauð paprika 1 laukur, saxaður 1/2 rautt chilli, fræhreinsað 1 msk ólífu olía Öllu hent í matvinnsluvél og maukað aðeins, á að vera svolítið gróft, ekki eins og súpa.