Kjúklingur í salsasósu

Þessi réttur er úr bókinni "Hvorki meira né minna" eftir Fanney Rut Elínardóttur og er hugsaður fyrir einn.

1 kjúklingabringa
2 tsk. paprikukrydd
1/2 tsk. chilli krydd
salt og pipar eftir smekk
olía til steikingar

50 gr. ostur

Kjúklingabringan er krydduð með paprikudufti, chilli, salti og pipar.
Steikt á pönnu í 5 mínútur til að loka henni og svo steikt þar til hún er næstum alveg full elduð.
Þá er hún sett í eldfast mót, salsa sósan sett ofan á og ostur yfir það.
Bakað á 180°c þar til bringurnar eru eldaðar í gegn og osturinn bráðnaður.


Salsasósa:

3-4 tómatar, gróft skorninr
1 rauð paprika
1 laukur, saxaður
1/2 rautt chilli, fræhreinsað
1 msk ólífu olía

Öllu hent í matvinnsluvél og maukað aðeins, á að vera svolítið gróft, ekki eins og súpa. 

Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur