Steinaldarbrauð

1/5 sólblómafræ
1/5 graskersfræ
1/5 sesamfræ
1/5 hörfræ
1/5 blanda af söxuðum möndlum og hnetum.

Öllu blandað saman og svo er 2-3 lúkum af blöndunni hrært saman við 1 egg og slettu af olíu og smá salt.
Blöndunni er dreift þunnt á plötu og bakað þar til það er orðið þurrt.

Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur