Posts

Showing posts from January, 2021

Kaldur prótein hafragrautur

Ég elska hafragraut, kaldan, heitan, skiptir ekki máli, þetta er allt gott :) Hér eru nokkrar hugmyndir að köldum prótein hafragraut til að skella í sig á morgnana.  Grunnuppskrift: 1/2 bolli tröllahafrar 2 msk chia fræ 1 bolli mjólk (ég nota oftast möndlumjólk) 25 gr prótein Svo er hægt að leika sér með þetta á allan hátt.  Ég læt bragðið af próteininu sem ég nota oftast stýra því hvað annað ég set í grautinn en hér eru hugmyndir: Sour cherry yogurt prótein 1 bréf eða 25 gr prótein 1/4 bolli trönuber Banana prótein  1 bréf eða 25 gr prótein 1/2 stappaður banani 1/4 bolli hakkaðar möndlur Vanillu prótein 1 bréf eða 25 gr prótein 1/4 bolli frosin bláber eða jarðarber Salty caramel prótein 1 bréf eða 25 gr prótein 1/4 bolli saxaðar döðlur