Göngu-nasl (Trail-Mix)

Göngu-Nasl Þetta er besta Trail-Mix sem ég hef gert og það er svo auðvelt að breyta því eftir þínum smekk. Uppskriftin er fengin frá The Healthy Maven . 1 1/2 bolli hnetur. t.d. möndlur, pekanhnetur, kasjúhnetur, jarðhnetur 1 bolli fræ, t.d. graskersfræ og sólblómafræ 1 bolli þurrkaðir ávextir (veldu ávexti án viðbætts sykurs) 1/2 bolli annað skemmtilegt t.d. súkkulaði. 1/4 tsk salt 1/2 tsk kanill Ristaðu hneturnar á 180°c í 7-10 mínútur í ofni, kældu þær og settu svo allt saman í skál, kryddið yfir og hristið vel. Ég geri yfirleitt 2x eða 3x uppskrift og FRYSTI svo í litlum pokum... já, það má nefnilega vel frysta hnetur og þurrkaða ávexti og geymist þetta í frysti í 6 mánuði. Þú verður samt löngu búin með þetta fyrir þann tíma :) Ef þú ert að gera göngu-nasl í fyrsta sinn, þá er hér útgáfan af uppskriftinni sem ég nota oftast: 3/4 bolli pekanhnetur 3/4 bolli kasjúhnetur 1/2 bolli sólblómafræ 1/2 bolli graskersfræ 1/2 bolli rúsínur 1/4 bolli trönuber 1/4 ...