Göngu-nasl (Trail-Mix)

 

Göngu-Nasl

Þetta er besta Trail-Mix sem ég hef gert og það er svo auðvelt að breyta því eftir þínum smekk. Uppskriftin er fengin frá The Healthy Maven

  • 1 1/2 bolli hnetur. t.d. möndlur, pekanhnetur, kasjúhnetur, jarðhnetur
  • 1 bolli fræ, t.d. graskersfræ og sólblómafræ
    göngu-nasl
  • 1 bolli þurrkaðir ávextir (veldu ávexti án viðbætts sykurs)
  • 1/2 bolli annað skemmtilegt t.d. súkkulaði.
  • 1/4 tsk salt
  • 1/2 tsk kanill 

Ristaðu hneturnar á 180°c í 7-10 mínútur í ofni, kældu þær og settu svo allt saman í skál, kryddið yfir og hristið vel. 

Ég geri yfirleitt 2x eða 3x uppskrift og FRYSTI svo í litlum pokum... já, það má nefnilega vel frysta hnetur og þurrkaða ávexti og geymist þetta í frysti í 6 mánuði. Þú verður samt löngu búin með þetta fyrir þann tíma :) 


Ef þú ert að gera göngu-nasl í fyrsta sinn, þá er hér útgáfan af uppskriftinni sem ég nota oftast:

  • 3/4 bolli pekanhnetur
  • 3/4 bolli kasjúhnetur
  • 1/2 bolli sólblómafræ
  • 1/2 bolli graskersfræ
  • 1/2 bolli rúsínur
  • 1/4 bolli trönuber
  • 1/4 bolli papaya og mango blanda
  • 1/2 bolli suðusúkkulaði (skorið smátt en ekki alveg í musl)
  • 1/4 tsk salt
  • 1/2 tsk kanill


Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur