Granólablanda Nönnu

250 g grófvölsuð hafragrjón 50 g sólblómafræ 50 g graskersfræ 50 g möndluflögur eða hnetur að eigin vali 1 tsk kanill 1 tsk engifer (duft) 1/2 tsk salt 100 ml ólífu- eða avókadóolía 1 tsk vanilluessens 2 eggjahvítur (eða 60 gr ef þú notar í brúsa) Öll þurrefnin blandast saman í skál. Blandið olíunni og vanilluessens saman í glas og hellið yfir þurrefnin. Stífþeytið eggjahvíturnar og hrærið létt saman við blönduna. Dreifið í ofnskúffu og bakið á 160°c í 20 mínútur eða þar til blandan verður þurr. Þegar 5 mínútur eru eftir af bökunartímanum, set ég 50gr af kókosflögum með. Þær brenna mjög auðveldlega, svo það þarf að fylgjast með þegar þær eru komnar útí blönduna. Þessu má auðvitað sleppa. Þegar blandan hefur svo kólnað, set ég trönuber, rúsínur og/eða saxaðar döðlur saman við granólað til að sæta það. Þessi uppskrift er frá Nönnu Rögnvaldar og fær hún miklar þakkir fyrir að gera þessa uppskrift, því ég hef bara notað þetta Granóla í mörg ár.