Ostborgara burrito
Þessi uppskrift er frá stealth_health_life á Instagram
gerir 14 burritos
Hakkið
- 1400 gr nautahakk
- 3 tsk fínt salt
- 4 tsk laukduft
- 4 tsk hvítlauksduft
- 4 tsk svartur pipar
- 4 tsk oreganó
- 2 tsk kúmín (cumin)
- 1 dós niðursoðnir tómatar (400gr)
- 400 gr rifinn ostur
Hakkið er steikt á pönnu með öllu kryddinu og tómötunum bætt út í þegar hakkið er nokkurnveginn steikt í gegn og ostinum er bætt út í síðast og látinn bráðna saman við kjötið.
Sósan
- 120 gr mæjónes (að eigin vali)
- 120 gr kotasæla eða grísk jógúrt
- 100 gr tómatsósa
- 2 msk hot sauce (má sleppa)
- 4 msk relish (má sleppa)
- hvítlauksduft, salt og pipar eftir smekk
Það er auðveldara að rúlla vefjunum upp ef hakkblandan er kæld fyrir upprúllun.
Borðið 2 á mann, frystið rest. Klárast á nokkrum dögum heima hjá mér 😄
P.s. Tom Walsh sem er eigandi uppskriftarinnar gerir pönnusteiktan lauk til að setja í þessa uppskrift, en mér finnst laukur vondur, svo ég sleppi honum alveg!
Ég bætti hot sauce svo við sjálf.
Ég bætti hot sauce svo við sjálf.
Comments
Post a Comment