Coca-Cola kaka

  • 250 gr Hveiti
  • 1 ½ tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 3 kúfaðar msk kakóduft
  • ¼ tsk matarsódi
  • 280 gr hrásykur
  • 200 gr ósaltað smjör
  • 250 ml Coca-Cola
  • 100 ml mjólk
  • 2 stór egg
  • 1 tsk vanilludropar
Hitið ofninn í 180°c og smyrjið 24 cm lausbotna kökuform.
Sigtið hveitið, lyfitiduftið, saltið, kakóið og matarsódann í skál og hrærið 
hrásykrinum útí.
Bræðið smjörið og kókið saman við lagan hita í potti og bætið hægt og 
rólega við þurrefnin ásamt mjólkinni, eggjunum og vanilludropunum. 
Hrærið stanslaust.
Þegar öllu hefur verið blandað varlega saman, hellið í kökuformið og bakið 
í 40 mín. Eða þar til að prjónn kemur hreinn úr miðju kökunnar.
Látið kólna á ofngrind í 10 mínútur og takið þá 
úr forminu þá og látið kólna betur á ofngrindinni.
Kremið:

  • 150 gr ósaltað smjör
  • 50 ml Coca-Cola
  • 3 msk kakóduft
  • 400 gr flórsykur
Bræðið smjörið í potti ásamt kókinu og kakó við lágan hita.
Sigtið flórsykurinn í skál og hellið smjörblöndunni hægt yfir og hrærið þar 
til mjúkt.
Smyrjið yfir kökuna og bíðið þar til kremið hefur jafnað sig.

Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur