Gúllas-súpa
Klassísk uppskrift af Ungverskri Gúllassúpu.
(fyrir 4)
600 gr gúllas
2 msk matarolía
2 shallot laukar, saxaðir
2 hvítlauksrif
2-3 gulrætur, sneiddar
3-4 kartöflur, sneiddar
2 paprikur, litur að eigin vali
1 msk paprikuduft
1 tsk kúmenfræ
1 dós niðursoðnir tómatar, saxaðir
1 msk tómatpúrra
salt og pipar eftir smekk
vatn
Hitið olíuna í potti og glærið laukinn. Stráið paprikuduftinu fyrir og látið krauma í smá stund.
Bætið gúllasinu út í og steikið. Leyfið kjötinu að malla í eigin vökva sí smá stund.
Setjið hvítlaukinn útí. Malið kúmenfræin og bætið þeim út í ásamt salti og svörtum pipar.
Bætið við nægilega miklu vatni til að hylja kjötið og látið malla á lágum hita í 1,5 tíma.
Bætið við niðurskornum kartöflum og gulrótum, bætið við örlitlu salti og 2-3 bollum af vatni ef þarf.
Sjóðið áfram í 30 mínútur.
Bætið við tómötunum, tómatpúrrunni og paprikunni.
Látið malla í 10 mínútur í viðbót. Takið lokið af ef súpan er of þunn.
Berið fram með sýrðum rjóma og góðu brauði.

Comments
Post a Comment