Kalkúnafylling
fyrir ca. 4 kg kalkún.
- 300 gr svínahakk
- 150 gr beikon teningar
- 3 pylsur, smátt saxaðar
- 1/2 laukur, saxaður
- 1 sellerístilkur, saxaður
- 2 hvítlauksgeirar, raspaðir eða saxaðir
- 1 tsk salt
- 1/4 tsk pipar
- 1 1/2 tsk kjúklingakrydd
- 1 tsk timían
- 1 tsk rósmarín
- 4 franskbrauðsneiðar, rifnar niður og
- bleyttar með mjólk
- 2 egg
- 1 grænt epli, skorið smátt
Öllu blandað vel saman í skál og svo sett inn í kalkúninn. Afganginn má setja í eldfast mót og baka með (í sirka 2 tíma).
Líka er gott að breiða beikonsneiðar yfir kalkúninn síðasta klukkutímann í ofninum,
það heldur honum mjúkum og gefur gott bragð.
Líka er gott að breiða beikonsneiðar yfir kalkúninn síðasta klukkutímann í ofninum,
það heldur honum mjúkum og gefur gott bragð.
Comments
Post a Comment