Þóru gott


  • 2 msk. síróp 
  • 250 gr. döðlur (steinlausar) 
  • 250 gr. sykur (gott og hollara að nota hrásykur) 
  • 150-200 gr. smjör (því meira smjör, því mýkri verða bitarnir) 
  • 100-130 gr. kókosmjöl 
  • 70-80 gr. Rice Crispies 

Hitið döðlur og síróp og e.t.v. smá vatn í potti og notið sleif til að mauka til döðlurnar.

Bætið sykri og smjöri í pottinn þegar döðlurnar eru orðnar vel maukaðar og hrærið þar til blandan hefur samlagast (ég miða við að örlítið smjör fljóti yfir, þá verður mýktin á bitunum mátuleg).

Takið af hitanum og látið bíða meðan þurrefnin eru vigtuð.

Blandið síðan öllu saman með sleif, sniðugt að nota pottinn ef hann er nógu stór.

Þjappið á bökunarplötu með bökunarpappír (miða við að þykktin sé 1 til 1½ cm) og kælið.

Ef platan er sett í kæli er hægt að skera í bita eftir 15 mín. kælingu.

Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur