2 bollar hveiti 3 tsk lyftiduft 1/2 tsk salt 3/4 bolli sykur 1 egg 1 bolli mjólk 1/4 bolli matarolía Hitið ofninn í 200°c. Hrærið öllum efnunum lauslega saman, ekki þeyta. Deigið gæti verið "kekkjótt". Gott er að bæta t.d. 1 bolla af bláberjum, karamellubitum, jarðaberjabitum, ferskjum eða einhverju öðru til að fá sætar muffins, en einnig er hægt að bæta í 1 bolla af rifnum osti eða 1/4 bolla af beikoni til að fá morgunverðarmúffur. Bakið í miðjum ofni í 25 mínútur eða þar til gullnar.
Ég elska hafragraut, kaldan, heitan, skiptir ekki máli, þetta er allt gott :) Hér eru nokkrar hugmyndir að köldum prótein hafragraut til að skella í sig á morgnana. Grunnuppskrift: 1/2 bolli tröllahafrar 2 msk chia fræ 1 bolli mjólk (ég nota oftast möndlumjólk) 25 gr prótein Svo er hægt að leika sér með þetta á allan hátt. Ég læt bragðið af próteininu sem ég nota oftast stýra því hvað annað ég set í grautinn en hér eru hugmyndir: Sour cherry yogurt prótein 1 bréf eða 25 gr prótein 1/4 bolli trönuber Banana prótein 1 bréf eða 25 gr prótein 1/2 stappaður banani 1/4 bolli hakkaðar möndlur Vanillu prótein 1 bréf eða 25 gr prótein 1/4 bolli frosin bláber eða jarðarber Salty caramel prótein 1 bréf eða 25 gr prótein 1/4 bolli saxaðar döðlur
Nei. Ég mun aldrei kalla þessa hvítu sósu uppstú eða uppstúf í hvorugkyni. En hér er samt einfaldasta og besta útgáfan af þessari sósu sem er ómissandi með hangikjötinu. 1/2 l nýmjólk 50 gr. smjör 3 msk. hveiti Mjólk, smjör og hveiti sett saman í pott, pískað saman og hitað að suðu. Hrært stöðugt í á meðan. Hitinn lækkaður og kryddað með salti, hvítum pipar og sykri eftir smekk. Hægt að nota smá múskat ef maður vill. (Þessi uppskrift er upprunalega frá Bönnuð Rögnvaldardóttur)
Comments
Post a Comment