Posts

Showing posts from November, 2011

Klikkaðar kjötbollur

Image
Fyrir nokkru síðan fann ég uppskriftasíðu hjá stelpu í Hollandi sem heitir Kay. Hún er snillingur í eldhúsinu og gerir bara góðan mat. Þetta er uppáhalds kjötbolluuppskriftin mín og deili ég henni hér með ykkur. Myndir og upprunalegu uppskriftina má sjá hér á síðu Kay. Bollurnar: 500 gr. nautahakk 1 shallot laukur 1/3 paprika  1 hvítlauksrif 1 chilli pipar 1 tsk oregano 1/2 tsk paprikukrydd 1/4 tsk kanill 1/2 tsk karrý 2 tsk þurrkuð steinselja eða 1 msk af ferskri 1 tsk salt 1 egg 3 msk fetaostur (sigtið olíuna frá) 4 msk brauðmylsna Saxið laukinn, hvítlaukinn, paprikuna og chillíið mjög fínt. Skellið öllum innihaldsefnunum í hrærivél (eða ef þið eruð ógeðslega sterk, þá getið þið hrært með höndunum!) og blandið saman í smá stund. Mótið 4-6 stórar bollur úr kjötdeiginu og brúnið létt á pönnu. Setjið í eldfast mót og passið að hafa það ágætlega stórt því sósan á eftir að koma yfir. Sósan: 1 msk olía 1 shallot laukur 1 tsk oregano 1/4 tsk kanill 1 dó...

Mexíkósk kjúklingasúpa (fyrir 6)

300 gr. kjúklingabringur 1 hvítlaukur 150 gr. púrrulaukur 2 paprikur 4 msk olía 1 1/2 msk karrý 400 gr. rjómaostur 200 gr. Heins chillisósa (eða tómatar í dós fyrir mildara bragð) 1,5 l. vatn 250 ml. rjómi 3 grænmetis- eða kjúklingateningar salt og pipar eftir smekk Skerið allt grænmetið smátt og steikið í potti. Karrý, vatni og krafti bætt út í og látið sjóða í 10 mínútur. Á meðan skerðu kjúklinginn í bita og steikir á pönnu. Rjóma, rjómaosti og chillisósu bætt út í. Kjúklingurinn settur síðastur og láitð sjóða í smá stund. Gott að bera fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og tortilla flögum.