Mexíkósk kjúklingasúpa (fyrir 6)

  • 300 gr. kjúklingabringur
  • 1 hvítlaukur
  • 150 gr. púrrulaukur
  • 2 paprikur
  • 4 msk olía
  • 1 1/2 msk karrý
  • 400 gr. rjómaostur
  • 200 gr. Heins chillisósa (eða tómatar í dós fyrir mildara bragð)
  • 1,5 l. vatn
  • 250 ml. rjómi
  • 3 grænmetis- eða kjúklingateningar
  • salt og pipar eftir smekk


Skerið allt grænmetið smátt og steikið í potti.
Karrý, vatni og krafti bætt út í og látið sjóða í 10 mínútur.
Á meðan skerðu kjúklinginn í bita og steikir á pönnu.

Rjóma, rjómaosti og chillisósu bætt út í.
Kjúklingurinn settur síðastur og láitð sjóða í smá stund.

Gott að bera fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og tortilla flögum.

Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur