Klikkaðar kjötbollur
Fyrir nokkru síðan fann ég uppskriftasíðu hjá stelpu í Hollandi sem heitir Kay. Hún er snillingur í eldhúsinu og gerir bara góðan mat.
Þetta er uppáhalds kjötbolluuppskriftin mín og deili ég henni hér með ykkur.
Myndir og upprunalegu uppskriftina má sjá hér á síðu Kay.
Bollurnar:
Saxið laukinn, hvítlaukinn, paprikuna og chillíið mjög fínt. Skellið öllum innihaldsefnunum í hrærivél (eða ef þið eruð ógeðslega sterk, þá getið þið hrært með höndunum!) og blandið saman í smá stund.
Mótið 4-6 stórar bollur úr kjötdeiginu og brúnið létt á pönnu.
Setjið í eldfast mót og passið að hafa það ágætlega stórt því sósan á eftir að koma yfir.
Sósan:
Glærið laukinn í olíunni (ég set smá hvítlauk hér líka, en ég elska hvítlauk!), takið af hitanum og setjið kryddið út í. Hrærið vel saman.
Hrærið tómötunum og vatninu út í og látið suðuna koma upp.
Hellið yfir kjötbollurnar og skellið í ofninn á 200°c í svona 30 mínútur.
Ég ber þær fram með spaghettí, kartöflum eða hrísgrjónum og það er allt jafn gott.

- 500 gr. nautahakk
- 1 shallot laukur
- 1/3 paprika
- 1 hvítlauksrif
- 1 chilli pipar
- 1 tsk oregano
- 1/2 tsk paprikukrydd
- 1/4 tsk kanill
- 1/2 tsk karrý
- 2 tsk þurrkuð steinselja eða 1 msk af ferskri
- 1 tsk salt
- 1 egg
- 3 msk fetaostur (sigtið olíuna frá)
- 4 msk brauðmylsna
Saxið laukinn, hvítlaukinn, paprikuna og chillíið mjög fínt. Skellið öllum innihaldsefnunum í hrærivél (eða ef þið eruð ógeðslega sterk, þá getið þið hrært með höndunum!) og blandið saman í smá stund.
Mótið 4-6 stórar bollur úr kjötdeiginu og brúnið létt á pönnu.
Setjið í eldfast mót og passið að hafa það ágætlega stórt því sósan á eftir að koma yfir.
Sósan:
- 1 msk olía
- 1 shallot laukur
- 1 tsk oregano
- 1/4 tsk kanill
- 1 dós niðursoðnir tómatar (best að hafa þá diced eða mauka þá með töfrasprota)
- 1/3 bolli vatn

Glærið laukinn í olíunni (ég set smá hvítlauk hér líka, en ég elska hvítlauk!), takið af hitanum og setjið kryddið út í. Hrærið vel saman.
Hrærið tómötunum og vatninu út í og látið suðuna koma upp.
Hellið yfir kjötbollurnar og skellið í ofninn á 200°c í svona 30 mínútur.
Ég ber þær fram með spaghettí, kartöflum eða hrísgrjónum og það er allt jafn gott.
Comments
Post a Comment