Bananabrauð Rögnu

Ég fann þessa dásamlegu uppskrift hérna hjá Rögnu en ákvað að setja hana á síðuna mína svo ég sé ekki alltaf að leita að henni :)
Ég bætti við 1 msk kanil í uppskriftina og er það bara dásamlega gott.


  • 2 bananar
  • 1/2 bolli sykur
  • 1 bolli hveiti
  • 1 egg
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1/4 tsk salt
  • 1 tsk kanill

Aðferð:
Þurrefnum eru öll sett í skál. Stappið bananana og blandið saman við þurrefnin ásamt egginu.  
Hrært saman með sleif þar til slétt og fellt.
Sett í smurt form og bakað á 180°c í  30-40 mínútur.

Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur