Posts

Showing posts from November, 2013

Mömmukökur Miðbæjarættarinnar

Þessar mömmukökur eru frá Jöggu móðursystur (ömmu Þorfinnu upphaflega) og eru þær bestu í heimi. Okkar mömmukökur eru ferhyrndar og á ég sérstakt mömmukökumót sem móða lét gera handa mér (hún er einstök).  Innihald: 1 kg. hveiti 250 gr. smjör 250 gr. sykur 500 gr. síróp 4 tsk engifer 2 tsk natron 3 egg Hitið smjör, síróp og sykur saman að suðu, kælið. Bætið eggi út í og blandið saman. Bætið þurrefnum út í og hrærið þar til úr verður sprungulaust deig. Látið deigið bíða á köldum stað.  Fletjið deigið frekar þunnt út og stingið út kökur.  Raðið á ofnplötur og bakið í u.þ.b. 6-8 mínútur við 180°c (170°c á blæstri). Kælið og setjið smjörkrem á milli.

Hreindýrahamborgarar

Stundum rekst ég á uppskriftir sem ég bara verð að stela, en ég er þó heiðarleg og vitna í hvaðan ég stel þeim. Þessir hamborgarar koma upphaflega frá Ragnari Frey Ingvarssyni lækni og ástríðukokki . 800 gr hreindýrahakk 1/2 rauðlaukur, saxaður 6 hvítlauksrif, söxuð 1/2 búnt af steinselju, saxað 4 tsk timian, saxað 2 tsk oregano, þurrkað 2 egg 3 msk af ristuðum furuhnetum, saxaðar 3 tsk salt slatti af nýmöluðum pipar Allt sett í skál og hrært þar til það er orðið að fínu hakkdeigi. Ef þetta er mjög blautt má setja smá brauðmylsnu út í. Látið standa í ísskáp í 2-3 tíma til að kjötið taki bragð af kryddinu. Skipt niður og pressað í hamborgara. Grillað. Með þessu bar ég fram hvítlauks aioli (úr búð) sem ég var búin að bæta basilku og steinselju saman við og svo sætkartöflu franskar, sem eru himneskar að mínu mati. Bernaissósa frá toppsósum toppaði svo allt. Þetta er svo brjálæðislega góð uppskrift að ég held að ég reyni ekki einu sinni að finna betri, því hún er se...