Mömmukökur Miðbæjarættarinnar
Þessar mömmukökur eru frá Jöggu móðursystur (ömmu Þorfinnu upphaflega) og eru þær bestu í heimi.
Okkar mömmukökur eru ferhyrndar og á ég sérstakt mömmukökumót sem móða lét gera handa mér (hún er einstök).
Innihald:
- 1 kg. hveiti
- 250 gr. smjör
- 250 gr. sykur
- 500 gr. síróp
- 4 tsk engifer
- 2 tsk natron
- 3 egg
Hitið smjör, síróp og sykur saman að suðu, kælið. Bætið eggi út í og blandið saman. Bætið þurrefnum út í og hrærið þar til úr verður sprungulaust deig. Látið deigið bíða á köldum stað.
Fletjið deigið frekar þunnt út og stingið út kökur.
Raðið á ofnplötur og bakið í u.þ.b. 6-8 mínútur við 180°c (170°c á blæstri).
Kælið og setjið smjörkrem á milli.
Comments
Post a Comment