Hreindýrahamborgarar

Stundum rekst ég á uppskriftir sem ég bara verð að stela, en ég er þó heiðarleg og vitna í hvaðan ég stel þeim.
Þessir hamborgarar koma upphaflega frá Ragnari Frey Ingvarssyni lækni og ástríðukokki.


  • 800 gr hreindýrahakk
  • 1/2 rauðlaukur, saxaður
  • 6 hvítlauksrif, söxuð
  • 1/2 búnt af steinselju, saxað
  • 4 tsk timian, saxað
  • 2 tsk oregano, þurrkað
  • 2 egg
  • 3 msk af ristuðum furuhnetum, saxaðar
  • 3 tsk salt
  • slatti af nýmöluðum pipar

Allt sett í skál og hrært þar til það er orðið að fínu hakkdeigi. Ef þetta er mjög blautt má setja smá brauðmylsnu út í.
Látið standa í ísskáp í 2-3 tíma til að kjötið taki bragð af kryddinu.
Skipt niður og pressað í hamborgara. Grillað.

Með þessu bar ég fram hvítlauks aioli (úr búð) sem ég var búin að bæta basilku og steinselju saman við og svo sætkartöflu franskar, sem eru himneskar að mínu mati.
Bernaissósa frá toppsósum toppaði svo allt.

Þetta er svo brjálæðislega góð uppskrift að ég held að ég reyni ekki einu sinni að finna betri, því hún er sennilega ekki til :)


Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur