Sloppy Joe
Þessi uppskrift er úr Bændablaðinu og vakti þvílíka lukkku á mínu heimili.
Kjötið:
- 600 gr hakk
- 1/4 tsk matarsódi til að mýkja kjötið
Blandið matarsódanum við hrátt hakkið og látið bíða í 1 mínútu. Steikið hakkið og kryddið með eftirfarandi:
- 1 msk laukduft
- 1 msk paprikuduft
- 1 msk svartur pipar
- 2 tsk hvítlauksduft
- 1 tsk chilliduft
Þegar kryddinu hefur verið hrært saman við er gott að setja 1 msk hveiti út í hakkið til að þykkja sósuna og steikja.
Sósan:
- 2 msk tómatpúrra
- 5 msk tómatsósa
- 2 msk gult sinnep
- 2 msk worchestersósa
- 1 tsk púðursykur
- 350 ml vatn + 1 kjötkraftur
Tómatpúrran fer fyrst og hrærist saman við, restin af innihaldinu fer svo saman við og allt látið malla undir loki í 10-15 mínútur.
Berist fram í hamborgarabrauði með (súrum) gúrkum.
Comments
Post a Comment