Subway kökur

  • 1 og 3/4 bollar hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1/4 tsk salt

Blanda þessum þurrefnum saman í skál.

  • 1/3 bollar sykur
  •  1/2 bolli + 2 msk púðursykur 
  •  1/3 bolli + 2 msk olía 

Hrært saman með sleif í annarri skál.

  • 1/4 bolli mjólk 
  • 1/2 tsk vanilludropar

Blandað saman við sykurinn og olíuna.

  • 1/2 bolli hvítir súkkulaðidropar
  • 1/4 bolli saxaðar pekanhnetur 

Þessu er blandað rólega saman við.

Sett í ísskáp í klukkutíma. 

Deigið er mótað í kúlur á stærð borðtenniskúlur við og bakað á 180°c án blásturs í 10-12 mínútur.


Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur