Kryddkaka - sú allra besta


 Þessi kryddkaka er eins og jólin í einum munnbita fyrir mér. 

Hún er í grunninn klassísk uppskrift frá mömmu en með örlítilli viðbót frá Völlu Gröndal.

Kryddkaka

3 dl hveiti

3 dl haframjöl

2 tsk kanill

1 tsk kakó

1 tsk negull

1 tsk engifer

1/2 tsk múskat (má sleppa)

1 tsk matarsódi

1/4 tsk salt

1 dl sykur

1 dl púðursykur

3 dl mjólk (má vera hvaða mjólk sem er)

Þurrefnin eru hrærð saman og mjólkinni svo blandað við. 

Bakað á 200°c, neðarlega í ofninum í 40 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út. 

Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur