"Marsipan" kúlur
Ég er alltaf að reyna að borða aðeins hollara í dag en í gær. Ég er mikill aðdáandi marsipans, en það eru víst 476 kaloríur í 100gr af marsipani. Þar af eru 38gr sykur, 30gr fita, 7gr trefjar og 11gr prótein.
Þetta er klárlega ekki það versta sem hægt er að láta ofan í sig, en þessi uppskrift gæti gefið aðeins meira af næringarefnum og trefjum.
- 1 dós kjúklingabaunir (án vökva og skolaðar)
- 6 mjúkar döðlur (eða 9 þurrkaðar sem búnar eru að liggja í heitu vatni í klukkustund)
- 1/4 bolli hafrahveiti (ég hendi bara haframjöli í blandara í smá stund)
- 1 tsk vanilludropar
- 1 tsk möndludropar
- 1/4 tsk salt
Allt sett í matvinnsluvél (góðan blandara) og maukað.
Ég rúlla þessu í litlar kúlur og hjúpa með suðusúkkulaði.
Geymist í frysti í nokkra mánuði.
Uppskriftin er fengin héðan og breyt örlítið.
Samkvæmt útreikningum frá ChatGPT eru þetta rúmlega 300gr og í 100gr eru því:
190 kaloríur, 7,6gr prótein, 11gr sykur, 2,5gr fita og 7,6gr trefjar.
Þarna bætast reyndar við kaloríurnar úr súkkulaðinu, en fólki er frjálst að velja hvernig súkkulaði það notar og ætla ég því ekki að bæta þeim við.
Comments
Post a Comment