Bestu muffins í heimi

  • 2 bollar hveiti
  • 3 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk salt
  • 3/4 bolli sykur
  • 1 egg
  • 1 bolli mjólk
  • 1/4 bolli matarolía

Hitið ofninn í 200°c.
Hrærið öllum efnunum lauslega saman, ekki þeyta. Deigið gæti verið "kekkjótt".
Gott er að bæta t.d. 1 bolla af bláberjum, karamellubitum, jarðaberjabitum, ferskjum eða einhverju öðru til að fá sætar muffins, en einnig er hægt að bæta í 1 bolla af rifnum osti eða 1/4 bolla af beikoni til að fá morgunverðarmúffur.

Bakið í miðjum ofni í 25 mínútur eða þar til gullnar.

Comments

  1. Stal þessari af þér, hún er alveg geggjuð, setti hvíta súkulaði dropa í hana og smjörkrem ofan á, hefði geta boðið forsetanum í heimsókn ;)

    ReplyDelete
  2. Kúl!
    Alltaf gaman þegar einhver er ánægður með uppskriftirnar :)

    ReplyDelete

Post a Comment

Popular posts from this blog

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur