Kalkúnafylling með trönuberjum

 Ég hef gert sömu kalkúnafyllinguna í 17 ár og ákvað að nú væri kominn tími á breytingar.

Þessi er "léttari" í magann og sennilega léttari fyrir budduna líka.

Innihald

  • Hálft franskbrauð
  • 3 msk smjör
  • 1 græn epli, skorið í bita
  • 1 sellerí stilkur, saxað
  • 2 shallot laukar, saxaður
  • 1/2 tsk salvía
  • 1/2 tsk timían
  • 1/2 tsk rósmarín
  • 1 msk steinselja
  • 1/2 bolli þurrkuð trönuber
  • 2 msk pekan hnetur, saxaðar
  • 1 1/4 bolli grænmetiskraftur
  • 1 egg, slegið saman
  • salt og pipar eftir smekk
    1. Leiðbeiningar
    2. Best er að byrja á að skera franskbrauðið í teninga og láta þá þorna yfir nótt. Ef það er ekki tími til þess má baka þá á 100°c í 20 mínútur.
    3. Hitið ofninn í 180°c og smyrjið eldfast mót með smjöri/olíu.
    4. Bræðið 3 msk af smjöri og steikið eplið, selleríið og laukinn þar til það verður mjúkt. Kryddið með salvíu, timían, rósmarín og steinselju.
    5. Setjið brauðmolana og trönuberin í skál, hellið grænmetiskrafti og slegnu eggi yfir og hrærið epla/lauk/sellerí blöndunni saman við. 
    6. Setjið í smurt eldfast mót og lokið með álpappír. Bakið í 45 mínútur með álpappírnum, takið hann svo af og bakið í 15 mínútur í viðbót. 
    7. Klippið ferska steinselju yfir til að skreyta með. 

Comments

Popular posts from this blog

Bestu muffins í heimi

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur