Posts

Showing posts from December, 2024

"Marsipan" kúlur

 Ég er alltaf að reyna að borða aðeins hollara í dag en í gær. Ég er mikill aðdáandi marsipans, en það eru víst 476 kaloríur í 100gr af marsipani. Þar af eru 38gr sykur, 30gr fita, 7gr trefjar og 11gr prótein. Þetta er klárlega ekki það versta sem hægt er að láta ofan í sig, en þessi uppskrift gæti gefið aðeins meira af næringarefnum og trefjum.  1 dós kjúklingabaunir (án vökva og skolaðar) 6 mjúkar döðlur (eða 9 þurrkaðar sem búnar eru að liggja í heitu vatni í klukkustund) 1/4 bolli hafrahveiti (ég hendi bara haframjöli í blandara í smá stund) 1 tsk vanilludropar 1 tsk möndludropar 1/4 tsk salt Allt sett í matvinnsluvél (góðan blandara) og maukað. Ég rúlla þessu í litlar kúlur og hjúpa með suðusúkkulaði.  Geymist í frysti í nokkra mánuði.  Uppskriftin er fengin héðan og breyt örlítið. Samkvæmt útreikningum frá ChatGPT eru þetta rúmlega 300gr og í 100gr eru því: 190 kaloríur, 7,6gr prótein, 11gr sykur, 2,5gr fita og 7,6gr trefjar.  Þarna bætast reyndar við kalo...

Kryddkaka - sú allra besta

Image
 Þessi kryddkaka er eins og jólin í einum munnbita fyrir mér.  Hún er í grunninn klassísk uppskrift frá mömmu en með örlítilli viðbót frá Völlu Gröndal . Kryddkaka 3 dl hveiti 3 dl haframjöl 2 tsk kanill 1 tsk kakó 1 tsk negull 1 tsk engifer 1/2 tsk múskat (má sleppa) 1 tsk matarsódi 1/4 tsk salt 1 dl sykur 1 dl púðursykur 3 dl mjólk (má vera hvaða mjólk sem er) Þurrefnin eru hrærð saman og mjólkinni svo blandað við.  Bakað á 200°c, neðarlega í ofninum í 40 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út.