Dukkah (Duqqa)
Einu sinni var hægt að fá Dukkah í búðum á Íslandi en ég hef ekki fundið það í nokkur ár, svo ég fór að gera mitt eigið, byggt á þessari uppskrift . Mér finnst heslihnetur ekki góðar, svo ég nota bara möndlur í staðinn. 1 bolli möndlur 8 msk hvít sesamfræ 1/4 bolli pistasíur 2 msk fennelfræ 2 tsk malað cumin 2 tsk malaður kóríander 1 tsk cayenne pipar Gróft salt Aðferð Ristaðu möndlurnar á þurri pönnu á meðal hita. Passaðu að þær brenni ekki. Færðu þær yfir í skál til að kólna aðeins. Ristaðu sesamfræin á sama hátt. Settu ristuðu möndlurnar og sesamfræin í matvinnsluvél. Bættu hinum innihaldsefnunum út í. Púlsaðu þar til blandan er orðin grófgerð, passaðu það þetta verði ekki of fínt malaða. Blandan geymist í nokkrar vikur í vel lokaðri krukku. Berist fram með brauði og olíu eða notist i uppskriftir eins og þessar fylltu kjúklingabringur