Trönuberjahlaup eða -sulta
Ég er vön að kaupa niðursoðið trönuberjahlaup til að hafa með kalkúnanum á aðfangadag, en stundum er það ekki til. Í ár sá ég það í Kosti í byrjun nóvember og hélt að ég hefði nægan tíma, en svo reyndist ekki vera og allt dósahlaup búið! Ég leitaði því á náðir internetsins og fann uppskrift sem ég aðlagaði og fékk fullkomið trönuberjahlaup (nú eða sultu). Trönuberjahlaup 2 bollar fersk trönuber 1/2 bolli þurrkuð trönuber 1 bolli sykur 1 bolli trönuberjasafi 2 tsk sultuhleypir Sjóðið allt saman á meðalhita og hrærið stanslaust til að það brenni ekki við. Fersku berin munu springa, svo það er gott að passa sig. Þegar berin eru vel soðin er hægt að nota töfrasprota til að mauka allt saman. Ef gera á sultu er nóg að setja hana núna í krukku og loka, en ef gera á hlaup þarf að merja berjablönduna í gegnum fínriðið stál sigti. Þegar búið er að skilja berjahratið frá hlaupinu er það sett aftur í pottinn, suðan látin koma upp og því svo hellt í krukku. Þetta hlaup er gott með ...