Posts

Dukkah (Duqqa)

 Einu sinni var hægt að fá Dukkah í búðum á Íslandi en ég hef ekki fundið það í nokkur ár, svo ég fór að gera mitt eigið, byggt á þessari uppskrift . Mér finnst heslihnetur ekki góðar, svo ég nota bara möndlur í staðinn. 1 bolli möndlur 8 msk hvít sesamfræ 1/4 bolli pistasíur 2 msk fennelfræ 2 tsk malað cumin  2 tsk malaður kóríander 1 tsk cayenne pipar Gróft salt Aðferð Ristaðu möndlurnar á þurri pönnu á meðal hita. Passaðu að þær brenni ekki. Færðu þær yfir í skál til að kólna aðeins. Ristaðu sesamfræin á sama hátt.  Settu ristuðu möndlurnar og sesamfræin í matvinnsluvél. Bættu hinum innihaldsefnunum út í.  Púlsaðu þar til blandan er orðin grófgerð, passaðu það þetta verði ekki of fínt malaða.  Blandan geymist í nokkrar vikur í vel lokaðri krukku.  Berist fram með brauði og olíu eða notist i uppskriftir eins og þessar fylltu kjúklingabringur

Trönuberjahlaup eða -sulta

Image
Ég er vön að kaupa niðursoðið trönuberjahlaup til að hafa með kalkúnanum á aðfangadag, en stundum er það ekki til. Í ár sá ég það í Kosti í byrjun nóvember og hélt að ég hefði nægan tíma, en svo reyndist ekki vera og allt dósahlaup búið! Ég leitaði því á náðir internetsins og fann uppskrift sem ég aðlagaði og fékk fullkomið trönuberjahlaup (nú eða sultu). Trönuberjahlaup 2 bollar fersk trönuber 1/2 bolli þurrkuð trönuber 1 bolli sykur 1 bolli trönuberjasafi 2 tsk sultuhleypir Sjóðið allt saman á meðalhita og hrærið stanslaust til að það brenni ekki við. Fersku berin munu springa, svo það er gott að passa sig.  Þegar berin eru vel soðin er hægt að nota töfrasprota til að mauka allt saman. Ef gera á sultu er nóg að setja hana núna í  krukku og loka, en ef gera á hlaup þarf að merja berjablönduna í gegnum fínriðið stál sigti.  Þegar búið er að skilja berjahratið frá hlaupinu er það sett aftur í pottinn, suðan látin koma upp og því svo hellt í krukku. Þetta hlaup er gott með ...

Fiskibollur Rögga

 Hér er uppskrift að bestu fiskibollum í heimi. 800-900 gr ýsa eða þorskur 1 laukur 1 egg 1,5 dl mjólk 1 tsk pipar 3 tsk salt 3 kúfaðar msk hveiti 3 kúfaðar msk kartöflumjöl Byrjað er á að hakka saman fiskinn og laukinn. 1 egg sett út í og hrært vel saman. 1,5 dl mjólk sett hægt og rólega saman við. 1 tsk pipar og 3 tsk salt hrært út í. 3 kúfaðar msk af hveiti og 3 kúfaðar msk af kartöflumjöli settar saman við á meðan vélin gengur á meðalhraða þar til allt er vel blandað saman.  Bollurnar eru svo steiktar upp úr miklu smjörlíki (plús olíu ef vill). Bollurnar eru svo soðnar eða hitaðar í ofni fyrir neyslu (mér finnst þær verða betri við að hita í ofni en mamma vill alltaf sjóða þær).

"Marsipan" kúlur

 Ég er alltaf að reyna að borða aðeins hollara í dag en í gær. Ég er mikill aðdáandi marsipans, en það eru víst 476 kaloríur í 100gr af marsipani. Þar af eru 38gr sykur, 30gr fita, 7gr trefjar og 11gr prótein. Þetta er klárlega ekki það versta sem hægt er að láta ofan í sig, en þessi uppskrift gæti gefið aðeins meira af næringarefnum og trefjum.  1 dós kjúklingabaunir (án vökva og skolaðar) 6 mjúkar döðlur (eða 9 þurrkaðar sem búnar eru að liggja í heitu vatni í klukkustund) 1/4 bolli hafrahveiti (ég hendi bara haframjöli í blandara í smá stund) 1 tsk vanilludropar 1 tsk möndludropar 1/4 tsk salt Allt sett í matvinnsluvél (góðan blandara) og maukað. Ég rúlla þessu í litlar kúlur og hjúpa með suðusúkkulaði.  Geymist í frysti í nokkra mánuði.  Uppskriftin er fengin héðan og breyt örlítið. Samkvæmt útreikningum frá ChatGPT eru þetta rúmlega 300gr og í 100gr eru því: 190 kaloríur, 7,6gr prótein, 11gr sykur, 2,5gr fita og 7,6gr trefjar.  Þarna bætast reyndar við kalo...

Kryddkaka - sú allra besta

Image
 Þessi kryddkaka er eins og jólin í einum munnbita fyrir mér.  Hún er í grunninn klassísk uppskrift frá mömmu en með örlítilli viðbót frá Völlu Gröndal . Kryddkaka 3 dl hveiti 3 dl haframjöl 2 tsk kanill 1 tsk kakó 1 tsk negull 1 tsk engifer 1/2 tsk múskat (má sleppa) 1 tsk matarsódi 1/4 tsk salt 1 dl sykur 1 dl púðursykur 3 dl mjólk (má vera hvaða mjólk sem er) Þurrefnin eru hrærð saman og mjólkinni svo blandað við.  Bakað á 200°c, neðarlega í ofninum í 40 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út. 

Subway kökur

1 og 3/4 bollar hveiti 1 tsk lyftiduft 1/2 tsk matarsódi 1/4 tsk salt Blanda þessum þurrefnum saman í skál. 1/3 bollar sykur  1/2 bolli + 2 msk púðursykur   1/3 bolli + 2 msk olía  Hrært saman með sleif í annarri skál. 1/4 bolli mjólk  1/2 tsk vanilludropar Blandað saman við sykurinn og olíuna. 1/2 bolli hvítir súkkulaðidropar 1/4 bolli saxaðar pekanhnetur  Þessu er blandað rólega saman við. Sett í ísskáp í klukkutíma.  Deigið er mótað í kúlur á stærð borðtenniskúlur við og bakað á 180°c án blásturs í 10-12 mínútur.

Sloppy Joe

 Þessi uppskrift er úr Bændablaðinu  og vakti þvílíka lukkku á mínu heimili.  Kjötið: 600 gr hakk 1/4 tsk matarsódi til að mýkja kjötið Blandið matarsódanum við hrátt hakkið og látið bíða í 1 mínútu. Steikið hakkið og kryddið með eftirfarandi: 1 msk laukduft 1 msk paprikuduft 1 msk svartur pipar 2 tsk hvítlauksduft 1 tsk chilliduft Þegar kryddinu hefur verið hrært saman við er gott að setja 1 msk hveiti út í hakkið til að þykkja sósuna  og steikja. Sósan: 2 msk tómatpúrra 5 msk tómatsósa 2 msk gult sinnep 2 msk worchestersósa 1 tsk púðursykur 350 ml vatn + 1 kjötkraftur Tómatpúrran fer fyrst og hrærist saman við, restin af innihaldinu fer svo saman við og allt látið malla undir loki í 10-15 mínútur.  Berist fram í hamborgarabrauði með (súrum) gúrkum.