Posts

Göngu-nasl (Trail-Mix)

Image
  Göngu-Nasl Þetta er besta Trail-Mix sem ég hef gert og það er svo auðvelt að breyta því eftir þínum smekk. Uppskriftin er fengin frá The Healthy Maven .  1 1/2 bolli hnetur. t.d. möndlur, pekanhnetur, kasjúhnetur, jarðhnetur 1 bolli fræ, t.d. graskersfræ og sólblómafræ 1 bolli þurrkaðir ávextir (veldu ávexti án viðbætts sykurs) 1/2 bolli annað skemmtilegt t.d. súkkulaði. 1/4 tsk salt 1/2 tsk kanill  Ristaðu hneturnar á 180°c í 7-10 mínútur í ofni, kældu þær og settu svo allt saman í skál, kryddið yfir og hristið vel.  Ég geri yfirleitt 2x eða 3x uppskrift og FRYSTI svo í litlum pokum... já, það má nefnilega vel frysta hnetur og þurrkaða ávexti og geymist þetta í frysti í 6 mánuði. Þú verður samt löngu búin með þetta fyrir þann tíma :)  Ef þú ert að gera göngu-nasl í fyrsta sinn, þá er hér útgáfan af uppskriftinni sem ég nota oftast: 3/4 bolli pekanhnetur 3/4 bolli kasjúhnetur 1/2 bolli sólblómafræ 1/2 bolli graskersfræ 1/2 bolli rúsínur 1/4 bolli trönuber 1/4 ...

Uppstúfur / Jafningur

 Nei. Ég mun aldrei kalla þessa hvítu sósu uppstú eða uppstúf í hvorugkyni. En hér er samt einfaldasta og besta útgáfan af þessari sósu sem er ómissandi með hangikjötinu. 1/2 l nýmjólk 50 gr. smjör 3 msk. hveiti Mjólk, smjör og hveiti sett saman í pott, pískað saman og hitað að suðu. Hrært stöðugt í á meðan. Hitinn lækkaður og kryddað með salti, hvítum pipar og sykri eftir smekk. Hægt að nota smá múskat ef maður vill. (Þessi uppskrift er upprunalega frá Bönnuð Rögnvaldardóttur)

Steinaldarbrauð

1/5 sólblómafræ 1/5 graskersfræ 1/5 sesamfræ 1/5 hörfræ 1/5 blanda af söxuðum möndlum og hnetum. Öllu blandað saman og svo er 2-3 lúkum af blöndunni hrært saman við 1 egg og slettu af olíu og smá salt. Blöndunni er dreift þunnt á plötu og bakað þar til það er orðið þurrt.

Mömmukökur Miðbæjarættarinnar

Þessar mömmukökur eru frá Jöggu móðursystur (ömmu Þorfinnu upphaflega) og eru þær bestu í heimi. Okkar mömmukökur eru ferhyrndar og á ég sérstakt mömmukökumót sem móða lét gera handa mér (hún er einstök).  Innihald: 1 kg. hveiti 250 gr. smjör 250 gr. sykur 500 gr. síróp 4 tsk engifer 2 tsk natron 3 egg Hitið smjör, síróp og sykur saman að suðu, kælið. Bætið eggi út í og blandið saman. Bætið þurrefnum út í og hrærið þar til úr verður sprungulaust deig. Látið deigið bíða á köldum stað.  Fletjið deigið frekar þunnt út og stingið út kökur.  Raðið á ofnplötur og bakið í u.þ.b. 6-8 mínútur við 180°c (170°c á blæstri). Kælið og setjið smjörkrem á milli.

Bananabrauð Rögnu

Ég fann þessa dásamlegu uppskrift hérna hjá Rögnu  en ákvað að setja hana á síðuna mína svo ég sé ekki alltaf að leita að henni :) Ég bætti við 1 msk kanil í uppskriftina og er það bara dásamlega gott. 2 bananar 1/2 bolli sykur 1 bolli hveiti 1 egg 1/2 tsk matarsódi 1/4 tsk salt 1 tsk kanill Aðferð: Þurrefnum eru öll sett í skál. Stappið bananana og blandið saman við þurrefnin ásamt egginu.   Hrært saman með sleif þar til slétt og fellt. S ett í smurt form og bakað á 180°c í  30-40 mínútur.

Dásamlegar vanillu muffins

Mér finnst bollakaka ljótt orð, orðskrípi eiginlega, svo ég mun alltaf kalla þetta muffins :) En ég fékk þessa uppskrift hér og hún er æðisleg (tvöfaldaði hana reyndar, hún er ekki svo stór). 2 1/2 bolli hveiti 2 1/2 tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi 1 tsk salt 2 egg 1 1/2 bolli sykur 3 tsk vanilludropar 1 bolli olía 1 bolli súrmjólk (eða AB mjólk) Blandið þurrefnunum saman í skál. Setjið eggin í hrærivélina og blandið saman í nokkrar sekúndur. Bætið sykrinum við og hrærið í 30 sekúndur eða svo. Bætið vanilludropunum og olíunni. Dragið úr hraðanum og setjið helminginn af þurrefnunum smám saman út í, þegar það hefur blandast aðeins, setjið þá helminginn af súrmjólkinni. Látið blandast og endurtakið. Hrærið ekki of lengi, aðeins þar til degið er orðið slétt og fellt. Nota bene: Deigið á að vera þunnt. Fyllið muffinsformin að 2/3 og bakið á 170°c í 12-15 mínútur. Kökurnar eru frekar ljósar. Kælið og setjið smjörkrem ofan á.

Klikkaðar kjötbollur

Image
Fyrir nokkru síðan fann ég uppskriftasíðu hjá stelpu í Hollandi sem heitir Kay. Hún er snillingur í eldhúsinu og gerir bara góðan mat. Þetta er uppáhalds kjötbolluuppskriftin mín og deili ég henni hér með ykkur. Myndir og upprunalegu uppskriftina má sjá hér á síðu Kay. Bollurnar: 500 gr. nautahakk 1 shallot laukur 1/3 paprika  1 hvítlauksrif 1 chilli pipar 1 tsk oregano 1/2 tsk paprikukrydd 1/4 tsk kanill 1/2 tsk karrý 2 tsk þurrkuð steinselja eða 1 msk af ferskri 1 tsk salt 1 egg 3 msk fetaostur (sigtið olíuna frá) 4 msk brauðmylsna Saxið laukinn, hvítlaukinn, paprikuna og chillíið mjög fínt. Skellið öllum innihaldsefnunum í hrærivél (eða ef þið eruð ógeðslega sterk, þá getið þið hrært með höndunum!) og blandið saman í smá stund. Mótið 4-6 stórar bollur úr kjötdeiginu og brúnið létt á pönnu. Setjið í eldfast mót og passið að hafa það ágætlega stórt því sósan á eftir að koma yfir. Sósan: 1 msk olía 1 shallot laukur 1 tsk oregano 1/4 tsk kanill 1 dó...