Kalkúnafylling með trönuberjum
Ég hef gert sömu kalkúnafyllinguna í 17 ár og ákvað að nú væri kominn tími á breytingar. Þessi er "léttari" í magann og sennilega léttari fyrir budduna líka. Innihald Hálft franskbrauð 3 msk smjör 1 græn epli, skorið í bita 1 sellerí stilkur, saxað 2 shallot laukar, saxaður 1/2 tsk salvía 1/2 tsk timían 1/2 tsk rósmarín 1 msk steinselja 1/2 bolli þurrkuð trönuber 2 msk pekan hnetur, saxaðar 1 1/4 bolli grænmetiskraftur 1 egg, slegið saman salt og pipar eftir smekk Leiðbeiningar Best er að byrja á að skera franskbrauðið í teninga og láta þá þorna yfir nótt. Ef það er ekki tími til þess má baka þá á 100°c í 20 mínútur. Hitið ofninn í 180°c og smyrjið eldfast mót með smjöri/olíu. Bræðið 3 msk af smjöri og steikið eplið, selleríið og laukinn þar til það verður mjúkt. Kryddið með salvíu, timían, rósmarín og steinselju. Setjið brauðmolana og trönuberin í skál, hellið grænmetiskrafti og slegnu eggi yfir og hrærið epla/lauk/sellerí blöndunni saman við. Setjið í smurt eldfast mót og...