Fiskibollur Rögga

 Hér er uppskrift að bestu fiskibollum í heimi.

  • 800-900 gr ýsa eða þorskur
  • 1 laukur
  • 1 egg
  • 1,5 dl mjólk
  • 1 tsk pipar
  • 3 tsk salt
  • 3 kúfaðar msk hveiti
  • 3 kúfaðar msk kartöflumjöl
Byrjað er á að hakka saman fiskinn og laukinn.
1 egg sett út í og hrært vel saman.
1,5 dl mjólk sett hægt og rólega saman við.
1 tsk pipar og 3 tsk salt hrært út í.

3 kúfaðar msk af hveiti og 3 kúfaðar msk af kartöflumjöli settar saman við á meðan vélin gengur á meðalhraða þar til allt er vel blandað saman. 

Bollurnar eru svo steiktar upp úr miklu smjörlíki (plús olíu ef vill).

Bollurnar eru svo soðnar eða hitaðar í ofni fyrir neyslu (mér finnst þær verða betri við að hita í ofni en mamma vill alltaf sjóða þær).


Comments

Popular posts from this blog

Kaldur prótein hafragrautur

Uppstúfur / Jafningur

Bestu muffins í heimi