Dukkah (Duqqa)
Einu sinni var hægt að fá Dukkah í búðum á Íslandi en ég hef ekki fundið það í nokkur ár, svo ég fór að gera mitt eigið, byggt á þessari uppskrift. Mér finnst heslihnetur ekki góðar, svo ég nota bara möndlur í staðinn.
1 bolli möndlur
8 msk hvít sesamfræ
1/4 bolli pistasíur
2 msk fennelfræ
2 tsk malað cumin
2 tsk malaður kóríander
1 tsk cayenne pipar
Gróft salt
Aðferð
Ristaðu möndlurnar á þurri pönnu á meðal hita. Passaðu að þær brenni ekki. Færðu þær yfir í skál til að kólna aðeins.
Ristaðu sesamfræin á sama hátt.
Settu ristuðu möndlurnar og sesamfræin í matvinnsluvél. Bættu hinum innihaldsefnunum út í.
Púlsaðu þar til blandan er orðin grófgerð, passaðu það þetta verði ekki of fínt malaða.
Blandan geymist í nokkrar vikur í vel lokaðri krukku.
Berist fram með brauði og olíu eða notist i uppskriftir eins og þessar fylltu kjúklingabringur
Comments
Post a Comment