2 bollar hveiti 3 tsk lyftiduft 1/2 tsk salt 3/4 bolli sykur 1 egg 1 bolli mjólk 1/4 bolli matarolía Hitið ofninn í 200°c. Hrærið öllum efnunum lauslega saman, ekki þeyta. Deigið gæti verið "kekkjótt". Gott er að bæta t.d. 1 bolla af bláberjum, karamellubitum, jarðaberjabitum, ferskjum eða einhverju öðru til að fá sætar muffins, en einnig er hægt að bæta í 1 bolla af rifnum osti eða 1/4 bolla af beikoni til að fá morgunverðarmúffur. Bakið í miðjum ofni í 25 mínútur eða þar til gullnar.
1/5 sólblómafræ 1/5 graskersfræ 1/5 sesamfræ 1/5 hörfræ 1/5 blanda af söxuðum möndlum og hnetum. Öllu blandað saman og svo er 2-3 lúkum af blöndunni hrært saman við 1 egg og slettu af olíu og smá salt. Blöndunni er dreift þunnt á plötu og bakað þar til það er orðið þurrt.
Comments
Post a Comment