2 1/2 tsk ger 3 dl vatn eða sódavatn 1 msk matarolía 1 tsk salt 1 tsk natron 7-8 dl hveiti Hnoða upp með hveiti, gera lengju og skera í bita, slétta með höndunum pikka í með gaffli og steikja á þurri pönnu.
2 msk. síróp 250 gr. döðlur (steinlausar) 250 gr. sykur (gott og hollara að nota hrásykur) 150-200 gr. smjör (því meira smjör, því mýkri verða bitarnir) 100-130 gr. kókosmjöl 70-80 gr. Rice Crispies Hitið döðlur og síróp og e.t.v. smá vatn í potti og notið sleif til að mauka til döðlurnar. Bætið sykri og smjöri í pottinn þegar döðlurnar eru orðnar vel maukaðar og hrærið þar til blandan hefur samlagast (ég miða við að örlítið smjör fljóti yfir, þá verður mýktin á bitunum mátuleg). Takið af hitanum og látið bíða meðan þurrefnin eru vigtuð. Blandið síðan öllu saman með sleif, sniðugt að nota pottinn ef hann er nógu stór. Þjappið á bökunarplötu með bökunarpappír (miða við að þykktin sé 1 til 1½ cm) og kælið. Ef platan er sett í kæli er hægt að skera í bita eftir 15 mín. kælingu.
(fyrir 4-6) 3 stórar sætar kartöflur 1 dl vatn 1 tsk salt 1 tsk pipar 3 msk smjör ¾ dl hlynsýróp Trönuberjasulta Aðferð: Hita ofninn í 180 gráður, skræla kartöflurnar og sneiða í tæplega 1 cm sneiðar. Raða í eldfast mót, hella vatni yfir, krydda með salti og pipar. Breiðið álpappír yfir og bakið í 60 mínútur. Setjið smjör, síróp, vatn og trönuberjasultu í pott og sjóðið í 5-8 mínútur. Hellið öllu yfir kartöflurnar og sjóðið áfram í 10-15 mínútur.
Botnar: 600 gr. Möndlur 500 gr. Flórsykur 11 – 12 stk. Eggjahvítur Krem: 11 – 12 stk. Eggjarauður 2 ¼ dl. Strásykur 2 ¼ dl. Vatn 500 gr. Smjör (mjúkt) 3 msk. Kakóduft 1 msk. Neskaffi Botnar: Möndlurnar malaðar, ekki í duft. Flórsykur sigtaður og bætt í. Eggjahvítur stífþeyttar og blandað varlega saman við. Sett með teskeið á bökunarplötu klædda smjörpappír og bakað við 180°C í u.þ.b. 10 mín. Ef notaður er blástursofn hafið þá hitann 160°C. Krem: Sjóðið vatn og sykur í einskonar síróp, þar til sykur leysist alveg upp. Eggjarauður þeyttar og sírópinu hellt heitu í mjórri bunu út í. Þeytið vel á meðan blandan kólnar, uns hún er létt og ljós. Sigtið kakó og kaffiduft og hrærið saman við mjúkt smjörið svo verði kekkjalaust og bættið því saman við eggjablönduna. Smyrjið kreminu á botnana á kökunum og frystið. Þegar kökurnar eru orðnar vel stýfar er kremhlutanum dýft í súkkulaðihjúp sem er gerður úr góðu hjúpsúkkulaði sem er brætt yfir vatnsbaði og haft rétt vol...
150 gr. smjörlíki 140 gr. púðursykur 140 gr. sykur 280 gr. hveiti 2 egg 5 gr. salt 5 gr. natron (matarsódi) 200 gr. súkkulaði 90 gr. hneturspænir (ef vill) Hafið smjörlíkið við stofuhita, saxið súkkulaðið frekar smátt. Blandið öllu saman í hrærivél, mótið í litlar kúlur og bakið við 200°c þar til gullið.
2 msk olía 1 paprika sneidd í bita 1 msk paprikuduft 4 dl kalkúnasoð úr ofnskúffu 1 msk kalkúnakraftur 2 dl rjómi 1/2 piparostur Sósujafnari Salt og pipar eftir þörfum Aðferð: Hitið olíu í potti og látið paprikuna krauma í 2 mínútur. Bætið paprikudufti í pottinn og látið krauma í 30 sek. Setjið kalkúnasoðið, kalkúnakraft, rjóma og piparost í pottinn og þykkið sósuna eftir þörfum. Smakkið til með salti og pipar.