Posts

Dukkah (Duqqa)

 Einu sinni var hægt að fá Dukkah í búðum á Íslandi en ég hef ekki fundið það í nokkur ár, svo ég fór að gera mitt eigið, byggt á þessari uppskrift . Mér finnst heslihnetur ekki góðar, svo ég nota bara möndlur í staðinn. 1 bolli möndlur 8 msk hvít sesamfræ 1/4 bolli pistasíur 2 msk fennelfræ 2 tsk malað cumin  2 tsk malaður kóríander 1 tsk cayenne pipar Gróft salt Aðferð Ristaðu möndlurnar á þurri pönnu á meðal hita. Passaðu að þær brenni ekki. Færðu þær yfir í skál til að kólna aðeins. Ristaðu sesamfræin á sama hátt.  Settu ristuðu möndlurnar og sesamfræin í matvinnsluvél. Bættu hinum innihaldsefnunum út í.  Púlsaðu þar til blandan er orðin grófgerð, passaðu það þetta verði ekki of fínt malaða.  Blandan geymist í nokkrar vikur í vel lokaðri krukku.  Berist fram með brauði og olíu eða notist i uppskriftir eins og þessar fylltu kjúklingabringur

Trönuberjahlaup eða -sulta

Image
Ég er vön að kaupa niðursoðið trönuberjahlaup til að hafa með kalkúnanum á aðfangadag, en stundum er það ekki til. Í ár sá ég það í Kosti í byrjun nóvember og hélt að ég hefði nægan tíma, en svo reyndist ekki vera og allt dósahlaup búið! Ég leitaði því á náðir internetsins og fann uppskrift sem ég aðlagaði og fékk fullkomið trönuberjahlaup (nú eða sultu). Trönuberjahlaup 2 bollar fersk trönuber 1/2 bolli þurrkuð trönuber 1 bolli sykur 1 bolli trönuberjasafi 2 tsk sultuhleypir Sjóðið allt saman á meðalhita og hrærið stanslaust til að það brenni ekki við. Fersku berin munu springa, svo það er gott að passa sig.  Þegar berin eru vel soðin er hægt að nota töfrasprota til að mauka allt saman. Ef gera á sultu er nóg að setja hana núna í  krukku og loka, en ef gera á hlaup þarf að merja berjablönduna í gegnum fínriðið stál sigti.  Þegar búið er að skilja berjahratið frá hlaupinu er það sett aftur í pottinn, suðan látin koma upp og því svo hellt í krukku. Þetta hlaup er gott með ...

Fiskibollur Rögga

 Hér er uppskrift að bestu fiskibollum í heimi. 800-900 gr ýsa eða þorskur 1 laukur 1 egg 1,5 dl mjólk 1 tsk pipar 3 tsk salt 3 kúfaðar msk hveiti 3 kúfaðar msk kartöflumjöl Byrjað er á að hakka saman fiskinn og laukinn. 1 egg sett út í og hrært vel saman. 1,5 dl mjólk sett hægt og rólega saman við. 1 tsk pipar og 3 tsk salt hrært út í. 3 kúfaðar msk af hveiti og 3 kúfaðar msk af kartöflumjöli settar saman við á meðan vélin gengur á meðalhraða þar til allt er vel blandað saman.  Bollurnar eru svo steiktar upp úr miklu smjörlíki (plús olíu ef vill). Bollurnar eru svo soðnar eða hitaðar í ofni fyrir neyslu (mér finnst þær verða betri við að hita í ofni en mamma vill alltaf sjóða þær).

"Marsipan" kúlur

 Ég er alltaf að reyna að borða aðeins hollara í dag en í gær. Ég er mikill aðdáandi marsipans, en það eru víst 476 kaloríur í 100gr af marsipani. Þar af eru 38gr sykur, 30gr fita, 7gr trefjar og 11gr prótein. Þetta er klárlega ekki það versta sem hægt er að láta ofan í sig, en þessi uppskrift gæti gefið aðeins meira af næringarefnum og trefjum.  1 dós kjúklingabaunir (án vökva og skolaðar) 6 mjúkar döðlur (eða 9 þurrkaðar sem búnar eru að liggja í heitu vatni í klukkustund) 1/4 bolli hafrahveiti (ég hendi bara haframjöli í blandara í smá stund) 1 tsk vanilludropar 1 tsk möndludropar 1/4 tsk salt Allt sett í matvinnsluvél (góðan blandara) og maukað. Ég rúlla þessu í litlar kúlur og hjúpa með suðusúkkulaði.  Geymist í frysti í nokkra mánuði.  Uppskriftin er fengin héðan og breyt örlítið. Samkvæmt útreikningum frá ChatGPT eru þetta rúmlega 300gr og í 100gr eru því: 190 kaloríur, 7,6gr prótein, 11gr sykur, 2,5gr fita og 7,6gr trefjar.  Þarna bætast reyndar við kalo...

Kryddkaka - sú allra besta

Image
 Þessi kryddkaka er eins og jólin í einum munnbita fyrir mér.  Hún er í grunninn klassísk uppskrift frá mömmu en með örlítilli viðbót frá Völlu Gröndal . Kryddkaka 3 dl hveiti 3 dl haframjöl 2 tsk kanill 1 tsk kakó 1 tsk negull 1 tsk engifer 1/2 tsk múskat (má sleppa) 1 tsk matarsódi 1/4 tsk salt 1 dl sykur 1 dl púðursykur 3 dl mjólk (má vera hvaða mjólk sem er) Þurrefnin eru hrærð saman og mjólkinni svo blandað við.  Bakað á 200°c, neðarlega í ofninum í 40 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út. 

Subway kökur

1 og 3/4 bollar hveiti 1 tsk lyftiduft 1/2 tsk matarsódi 1/4 tsk salt Blanda þessum þurrefnum saman í skál. 1/3 bollar sykur  1/2 bolli + 2 msk púðursykur   1/3 bolli + 2 msk olía  Hrært saman með sleif í annarri skál. 1/4 bolli mjólk  1/2 tsk vanilludropar Blandað saman við sykurinn og olíuna. 1/2 bolli hvítir súkkulaðidropar 1/4 bolli saxaðar pekanhnetur  Þessu er blandað rólega saman við. Sett í ísskáp í klukkutíma.  Deigið er mótað í kúlur á stærð borðtenniskúlur við og bakað á 180°c án blásturs í 10-12 mínútur.

Sloppy Joe

 Þessi uppskrift er úr Bændablaðinu  og vakti þvílíka lukkku á mínu heimili.  Kjötið: 600 gr hakk 1/4 tsk matarsódi til að mýkja kjötið Blandið matarsódanum við hrátt hakkið og látið bíða í 1 mínútu. Steikið hakkið og kryddið með eftirfarandi: 1 msk laukduft 1 msk paprikuduft 1 msk svartur pipar 2 tsk hvítlauksduft 1 tsk chilliduft Þegar kryddinu hefur verið hrært saman við er gott að setja 1 msk hveiti út í hakkið til að þykkja sósuna  og steikja. Sósan: 2 msk tómatpúrra 5 msk tómatsósa 2 msk gult sinnep 2 msk worchestersósa 1 tsk púðursykur 350 ml vatn + 1 kjötkraftur Tómatpúrran fer fyrst og hrærist saman við, restin af innihaldinu fer svo saman við og allt látið malla undir loki í 10-15 mínútur.  Berist fram í hamborgarabrauði með (súrum) gúrkum. 

Granólablanda Nönnu

Image
250 g grófvölsuð hafragrjón 50 g sólblómafræ 50 g graskersfræ 50 g möndluflögur eða hnetur að eigin vali 1 tsk kanill 1 tsk engifer (duft) 1/2 tsk salt 100 ml ólífu- eða avókadóolía 1 tsk vanilluessens 2 eggjahvítur (eða 60 gr ef þú notar í brúsa) Öll þurrefnin blandast saman í skál. Blandið olíunni og vanilluessens saman í glas og hellið yfir þurrefnin. Stífþeytið eggjahvíturnar og hrærið létt saman við blönduna. Dreifið í ofnskúffu og bakið á 160°c í 20 mínútur eða þar til blandan verður þurr. Þegar 5 mínútur eru eftir af bökunartímanum, set ég 50gr af kókosflögum með. Þær brenna mjög auðveldlega, svo það þarf að fylgjast með þegar þær eru komnar útí blönduna. Þessu má auðvitað sleppa. Þegar blandan hefur svo kólnað, set ég trönuber, rúsínur og/eða saxaðar döðlur saman við granólað til að sæta það. Þessi uppskrift er frá Nönnu Rögnvaldar  og fær hún miklar þakkir fyrir að gera þessa uppskrift, því ég hef bara notað þetta Granóla í mörg ár.

Ostborgara burrito

 Þessi uppskrift er frá stealth_health_life á Instagram gerir 14 burritos Hakkið 1400 gr nautahakk 3 tsk fínt salt 4 tsk laukduft 4 tsk hvítlauksduft 4 tsk svartur pipar 4 tsk oreganó      2 tsk kúmín (cumin) 1 dós niðursoðnir tómatar (400gr) 400 gr rifinn ostur Hakkið er steikt á pönnu með öllu kryddinu og tómötunum bætt út í þegar hakkið er nokkurnveginn steikt í gegn og o stinum er bætt út í síðast og látinn bráðna saman við kjötið.  Sósan 120 gr mæjónes (að eigin vali) 120 gr kotasæla eða grísk jógúrt 100 gr tómatsósa 2 msk hot sauce (má sleppa) 4 msk relish (má sleppa) hvítlauksduft, salt og pipar eftir smekk Blandið sósunni og hakkinu saman og setjið inn í tortillakökurnar. Ég nota prótein vefjur frá Bætiefnabúllunni . Það er auðveldara að rúlla vefjunum upp ef hakkblandan er kæld fyrir upprúllun. Borðið 2 á mann, frystið rest. Klárast á nokkrum dögum heima hjá mér 😄 P.s. Tom Walsh sem er eigandi uppskriftarinnar gerir pönnusteiktan lauk til að setja í þe...

Göngu-nasl (Trail-Mix)

Image
  Göngu-Nasl Þetta er besta Trail-Mix sem ég hef gert og það er svo auðvelt að breyta því eftir þínum smekk. Uppskriftin er fengin frá The Healthy Maven .  1 1/2 bolli hnetur. t.d. möndlur, pekanhnetur, kasjúhnetur, jarðhnetur 1 bolli fræ, t.d. graskersfræ og sólblómafræ 1 bolli þurrkaðir ávextir (veldu ávexti án viðbætts sykurs) 1/2 bolli annað skemmtilegt t.d. súkkulaði. 1/4 tsk salt 1/2 tsk kanill  Ristaðu hneturnar á 180°c í 7-10 mínútur í ofni, kældu þær og settu svo allt saman í skál, kryddið yfir og hristið vel.  Ég geri yfirleitt 2x eða 3x uppskrift og FRYSTI svo í litlum pokum... já, það má nefnilega vel frysta hnetur og þurrkaða ávexti og geymist þetta í frysti í 6 mánuði. Þú verður samt löngu búin með þetta fyrir þann tíma :)  Ef þú ert að gera göngu-nasl í fyrsta sinn, þá er hér útgáfan af uppskriftinni sem ég nota oftast: 3/4 bolli pekanhnetur 3/4 bolli kasjúhnetur 1/2 bolli sólblómafræ 1/2 bolli graskersfræ 1/2 bolli rúsínur 1/4 bolli trönuber 1/4 ...

Uppstúfur / Jafningur

 Nei. Ég mun aldrei kalla þessa hvítu sósu uppstú eða uppstúf í hvorugkyni. En hér er samt einfaldasta og besta útgáfan af þessari sósu sem er ómissandi með hangikjötinu. 1/2 l nýmjólk 50 gr. smjör 3 msk. hveiti Mjólk, smjör og hveiti sett saman í pott, pískað saman og hitað að suðu. Hrært stöðugt í á meðan. Hitinn lækkaður og kryddað með salti, hvítum pipar og sykri eftir smekk. Hægt að nota smá múskat ef maður vill. (Þessi uppskrift er upprunalega frá Bönnuð Rögnvaldardóttur)

Steinaldarbrauð

1/5 sólblómafræ 1/5 graskersfræ 1/5 sesamfræ 1/5 hörfræ 1/5 blanda af söxuðum möndlum og hnetum. Öllu blandað saman og svo er 2-3 lúkum af blöndunni hrært saman við 1 egg og slettu af olíu og smá salt. Blöndunni er dreift þunnt á plötu og bakað þar til það er orðið þurrt.

Mömmukökur Miðbæjarættarinnar

Þessar mömmukökur eru frá Jöggu móðursystur (ömmu Þorfinnu upphaflega) og eru þær bestu í heimi. Okkar mömmukökur eru ferhyrndar og á ég sérstakt mömmukökumót sem móða lét gera handa mér (hún er einstök).  Innihald: 1 kg. hveiti 250 gr. smjör 250 gr. sykur 500 gr. síróp 4 tsk engifer 2 tsk natron 3 egg Hitið smjör, síróp og sykur saman að suðu, kælið. Bætið eggi út í og blandið saman. Bætið þurrefnum út í og hrærið þar til úr verður sprungulaust deig. Látið deigið bíða á köldum stað.  Fletjið deigið frekar þunnt út og stingið út kökur.  Raðið á ofnplötur og bakið í u.þ.b. 6-8 mínútur við 180°c (170°c á blæstri). Kælið og setjið smjörkrem á milli.

Bananabrauð Rögnu

Ég fann þessa dásamlegu uppskrift hérna hjá Rögnu  en ákvað að setja hana á síðuna mína svo ég sé ekki alltaf að leita að henni :) Ég bætti við 1 msk kanil í uppskriftina og er það bara dásamlega gott. 2 bananar 1/2 bolli sykur 1 bolli hveiti 1 egg 1/2 tsk matarsódi 1/4 tsk salt 1 tsk kanill Aðferð: Þurrefnum eru öll sett í skál. Stappið bananana og blandið saman við þurrefnin ásamt egginu.   Hrært saman með sleif þar til slétt og fellt. S ett í smurt form og bakað á 180°c í  30-40 mínútur.

Dásamlegar vanillu muffins

Mér finnst bollakaka ljótt orð, orðskrípi eiginlega, svo ég mun alltaf kalla þetta muffins :) En ég fékk þessa uppskrift hér og hún er æðisleg (tvöfaldaði hana reyndar, hún er ekki svo stór). 2 1/2 bolli hveiti 2 1/2 tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi 1 tsk salt 2 egg 1 1/2 bolli sykur 3 tsk vanilludropar 1 bolli olía 1 bolli súrmjólk (eða AB mjólk) Blandið þurrefnunum saman í skál. Setjið eggin í hrærivélina og blandið saman í nokkrar sekúndur. Bætið sykrinum við og hrærið í 30 sekúndur eða svo. Bætið vanilludropunum og olíunni. Dragið úr hraðanum og setjið helminginn af þurrefnunum smám saman út í, þegar það hefur blandast aðeins, setjið þá helminginn af súrmjólkinni. Látið blandast og endurtakið. Hrærið ekki of lengi, aðeins þar til degið er orðið slétt og fellt. Nota bene: Deigið á að vera þunnt. Fyllið muffinsformin að 2/3 og bakið á 170°c í 12-15 mínútur. Kökurnar eru frekar ljósar. Kælið og setjið smjörkrem ofan á.

Klikkaðar kjötbollur

Image
Fyrir nokkru síðan fann ég uppskriftasíðu hjá stelpu í Hollandi sem heitir Kay. Hún er snillingur í eldhúsinu og gerir bara góðan mat. Þetta er uppáhalds kjötbolluuppskriftin mín og deili ég henni hér með ykkur. Myndir og upprunalegu uppskriftina má sjá hér á síðu Kay. Bollurnar: 500 gr. nautahakk 1 shallot laukur 1/3 paprika  1 hvítlauksrif 1 chilli pipar 1 tsk oregano 1/2 tsk paprikukrydd 1/4 tsk kanill 1/2 tsk karrý 2 tsk þurrkuð steinselja eða 1 msk af ferskri 1 tsk salt 1 egg 3 msk fetaostur (sigtið olíuna frá) 4 msk brauðmylsna Saxið laukinn, hvítlaukinn, paprikuna og chillíið mjög fínt. Skellið öllum innihaldsefnunum í hrærivél (eða ef þið eruð ógeðslega sterk, þá getið þið hrært með höndunum!) og blandið saman í smá stund. Mótið 4-6 stórar bollur úr kjötdeiginu og brúnið létt á pönnu. Setjið í eldfast mót og passið að hafa það ágætlega stórt því sósan á eftir að koma yfir. Sósan: 1 msk olía 1 shallot laukur 1 tsk oregano 1/4 tsk kanill 1 dó...

Mexíkósk kjúklingasúpa (fyrir 6)

300 gr. kjúklingabringur 1 hvítlaukur 150 gr. púrrulaukur 2 paprikur 4 msk olía 1 1/2 msk karrý 400 gr. rjómaostur 200 gr. Heins chillisósa (eða tómatar í dós fyrir mildara bragð) 1,5 l. vatn 250 ml. rjómi 3 grænmetis- eða kjúklingateningar salt og pipar eftir smekk Skerið allt grænmetið smátt og steikið í potti. Karrý, vatni og krafti bætt út í og látið sjóða í 10 mínútur. Á meðan skerðu kjúklinginn í bita og steikir á pönnu. Rjóma, rjómaosti og chillisósu bætt út í. Kjúklingurinn settur síðastur og láitð sjóða í smá stund. Gott að bera fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og tortilla flögum.

Heimabakað brauð á 5 mínútum á dag

Þessi uppskrift er skemmtileg því hún býður upp á þann valmöguleika að vera með heimabakað brauð á hverjum degi. 3 bollar volgt vatn 1 1/2 msk ger 1 1/2 msk sjávar salt 6 1/2 bolli hveiti Taktu fram stóra skál, helst 5-6 lítra, og heltu vatninu í hana. Heltu svo gerinu og saltinu út í vatnið og öllu hveitinu þar á eftir. Hrærðu lauslega með trésleif (eða dönskum deig þeytara ef þú býrð svo vel að eiga þannig). Deigið á að vera gróft og kekkjótt. Lokaðu nú ílátinu með loki eða plast filmu (gerðu nokkur lítil göt á hana) og láttu standa í stofuhita í 2 tíma. Ekki berja deigið niður, það hefast mikið og á að gera það. Settu deigið inn í ísskáp og næsta dag verður það búið að "falla" talsvert, þetta er líka alveg eðlilegt. Stráðu smá hveiti yfir deigið til að það festist síður við hendurnar á þér og klipptu af svona 500 gramma stykki af og látu deigið jafna sig í 40 mínútur á bökunarpappír (það má líka bíða í 60-90 mínútur, brauðið verður þá holóttra). Hitaðu ofn...

Bestu muffins í heimi

2 bollar hveiti 3 tsk lyftiduft 1/2 tsk salt 3/4 bolli sykur 1 egg 1 bolli mjólk 1/4 bolli matarolía Hitið ofninn í 200°c. Hrærið öllum efnunum lauslega saman, ekki þeyta. Deigið gæti verið "kekkjótt". Gott er að bæta t.d. 1 bolla af bláberjum, karamellubitum, jarðaberjabitum, ferskjum eða einhverju öðru til að fá sætar muffins, en einnig er hægt að bæta í 1 bolla af rifnum osti eða 1/4 bolla af beikoni til að fá morgunverðarmúffur. Bakið í miðjum ofni í 25 mínútur eða þar til gullnar.

Ömmu nan

2 1/2 tsk ger 3 dl vatn eða sódavatn 1 msk matarolía 1 tsk salt 1 tsk natron 7-8 dl hveiti Hnoða upp með hveiti, gera lengju og skera í bita, slétta með höndunum pikka í með gaffli og steikja á þurri pönnu.