Posts

Showing posts from February, 2011

Ömmu nan

2 1/2 tsk ger 3 dl vatn eða sódavatn 1 msk matarolía 1 tsk salt 1 tsk natron 7-8 dl hveiti Hnoða upp með hveiti, gera lengju og skera í bita, slétta með höndunum pikka í með gaffli og steikja á þurri pönnu.

Þóru gott

2 msk. síróp  250 gr. döðlur (steinlausar)  250 gr. sykur (gott og hollara að nota hrásykur)  150-200 gr. smjör (því meira smjör, því mýkri verða bitarnir)  100-130 gr. kókosmjöl  70-80 gr. Rice Crispies  Hitið döðlur og síróp og e.t.v. smá vatn í potti og notið sleif til að mauka til döðlurnar. Bætið sykri og smjöri í pottinn þegar döðlurnar eru orðnar vel maukaðar og hrærið þar til blandan hefur samlagast (ég miða við að örlítið smjör fljóti yfir, þá verður mýktin á bitunum mátuleg). Takið af hitanum og látið bíða meðan þurrefnin eru vigtuð. Blandið síðan öllu saman með sleif, sniðugt að nota pottinn ef hann er nógu stór. Þjappið á bökunarplötu með bökunarpappír (miða við að þykktin sé 1 til 1½ cm) og kælið. Ef platan er sett í kæli er hægt að skera í bita eftir 15 mín. kælingu.

Vöfflur frá ömmu Þorfinnu

7 1/2 dl hveiti 1 1/2 dl sykur 100 gr brætt smjörlíki 1 tsk matarsódi 2 egg 1 tsk vanilludropar Mjólk til að þynna Hrærið öllu saman og bakið.

Sætar kartöflur með trönuberjasultu (jólamaturinn)

(fyrir 4-6) 3 stórar sætar kartöflur 1 dl vatn 1 tsk salt 1 tsk pipar 3 msk smjör ¾ dl hlynsýróp Trönuberjasulta Aðferð: Hita ofninn í 180 gráður, skræla kartöflurnar og sneiða í tæplega 1 cm sneiðar. Raða í eldfast mót, hella vatni yfir, krydda með salti og pipar. Breiðið álpappír yfir og bakið í 60 mínútur. Setjið smjör, síróp, vatn og trönuberjasultu í pott og sjóðið í 5-8 mínútur. Hellið öllu yfir kartöflurnar og sjóðið áfram í 10-15 mínútur.

Sörur

Botnar: 600 gr. Möndlur 500 gr. Flórsykur 11 – 12 stk. Eggjahvítur Krem: 11 – 12 stk. Eggjarauður 2 ¼ dl. Strásykur 2 ¼ dl. Vatn 500 gr. Smjör (mjúkt) 3 msk. Kakóduft 1 msk. Neskaffi Botnar: Möndlurnar malaðar, ekki í duft. Flórsykur sigtaður og bætt í. Eggjahvítur stífþeyttar og blandað  varlega  saman við. Sett með teskeið á bökunarplötu klædda smjörpappír og bakað við 180°C í u.þ.b. 10 mín. Ef notaður er blástursofn hafið þá hitann 160°C. Krem: Sjóðið vatn og sykur í einskonar síróp, þar til sykur leysist alveg upp. Eggjarauður þeyttar og sírópinu hellt heitu í mjórri bunu út í. Þeytið vel á meðan blandan kólnar, uns hún er létt og ljós. Sigtið kakó og kaffiduft og hrærið saman við mjúkt smjörið svo verði kekkjalaust og bættið því saman við eggjablönduna. Smyrjið kreminu á botnana á kökunum og frystið. Þegar kökurnar eru orðnar vel stýfar er kremhlutanum dýft í súkkulaðihjúp sem er gerður úr góðu hjúpsúkkulaði sem er brætt yfir vatnsbaði og haft rétt vol...

Súkkulaðihlunkar

150 gr. smjörlíki 140 gr. púðursykur 140 gr. sykur 280 gr. hveiti 2 egg 5 gr. salt 5 gr. natron (matarsódi) 200 gr. súkkulaði 90 gr. hneturspænir (ef vill) Hafið smjörlíkið við stofuhita, saxið súkkulaðið frekar smátt. Blandið öllu saman í hrærivél, mótið í litlar kúlur og bakið við 200°c þar til gullið.

Paprikusósa með piparosti

2 msk olía 1 paprika sneidd í bita 1 msk paprikuduft 4 dl kalkúnasoð úr ofnskúffu 1 msk kalkúnakraftur 2 dl rjómi 1/2 piparostur Sósujafnari Salt og pipar eftir þörfum Aðferð: Hitið olíu í potti og látið paprikuna krauma í 2 mínútur. Bætið paprikudufti í pottinn og látið krauma í 30 sek. Setjið kalkúnasoðið, kalkúnakraft, rjóma og piparost í pottinn og þykkið sósuna eftir þörfum. Smakkið til með salti og pipar.

Laufabrauð ömmu Þorfinnu

1 kg hveiti 4 1/2 tsk salt 4 msk sykur 1 tsk lyftiduft 1/8 tsk hjartasalt 1/8 natron (matarsódi) 800 ml mjólk 2 msk kúmen 100 gr smjörlíki Mjólk, smjörlíki og kúmen hitað að suðu og látið standa í smá stund. Deigið hnoðað upp og rúllað í pylsu. Látið standa í viskastykki í 10-15 mínútur. Deigið er skorið í 40-45 gr. kúlur, flatt mjög þunnt út og hringlótt kaka skorin út. Eftir að búið er að skera í kökurnar er ISIO 4 olía hituð í víðum potti eða pönnu og hver kaka steikt. Gott er að nýta afskurðinn af kökunum til að kanna hvort olían er nógu heit (einnig eru Lufsurnar mjög góðar :-)

Minstrels smákökur

u.þ.b. 50 stykki 1 dl flórsykur 200 gr smjör 1 dl kartöflumjöl 4 dl hveiti 1 pakki Minstrels (225 gr) 1. Blandið saman flórsykri, smjöri, kartöflumjöli og hveiti og hnoðið. 2. Mótið litlar kúlur úr deiginu (13 gr) og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír. 3. Setjið Minstrels á hverja köku og bakið í miðjum ofni við 175°c í u.þ.b. 8-10 mínútur.

Köld sósa með silungi

1/2 dl matarolía 1 msk vínedik 1 tsk dijon sinnep 1 msk ferskt dill 1 msk fersk steinselja 1 msk graslaukur 3 tsk sítrónubörkur 1/2 tsk sykur salt og pipar

Kalkúnafylling

fyrir ca. 4 kg kalkún. 300 gr svínahakk 150 gr beikon teningar 3 pylsur, smátt saxaðar 1/2 laukur, saxaður  1 sellerístilkur, saxaður  2 hvítlauksgeirar, raspaðir eða saxaðir  1 tsk salt 1/4 tsk pipar 1 1/2 tsk kjúklingakrydd 1 tsk timían  1 tsk rósmarín  4 franskbrauðsneiðar, rifnar niður og bleyttar með mjólk 2 egg 1 grænt epli, skorið smátt Öllu blandað vel saman í skál og svo sett inn í kalkúninn. Afganginn má setja í eldfast mót og baka með (í sirka 2 tíma). Líka er gott að breiða beikonsneiðar yfir kalkúninn síðasta klukkutímann í ofninum, það heldur honum mjúkum og gefur gott bragð.

Hálfmánar

500 g hveiti 300 g smjörlíki 200 g sykur 2 egg 2 tsk. lyftiduft 2 tsk. hjartarsalt vanilludropar rabarbarasulta Smjörlíki mulið saman við þurrefnin. Eggi og vanilludropum bætt við. Deigið er síðan hnoðað uns það er slétt og sprungulaust. Gott er gott að láta það bíða í kulda yfir nótt. Deigið er nú flatt út og mótað í kökur ca. 6-8 cm í þvermál, gott að nota glas. Sulta látin á miðju hverar köku og þær brotnar til helminga og brúnum þrýst saman.

Fylltar kjúklingabringur

4 kjúklingabringur 1/2 poki spínat, eða um 150g 2 msk. góð ólífuolía 4 msk. Dukkah 5 msk. fetaostur í olíu Steikið spínatið á pönnu í örlítilli olíu þar til það er mjúkt. Kreistið úr því mesta safann og blandið fetaosti og dukkah saman við (stappið til að þetta verði svolítið maukkent). Skerið vasa á bringurnar og setjið fyllinguna í. Gott er að loka sárinu með tannstönglum svo fyllingin leki ekki út. Penslið bringurnar með olíu af fetaostinum og stráið örlitlu salti yfir (við slepptum þessu og það kom alls ekki að sök). Setjið bringurnar í 180c heitan ofn og bakið í 20-25 mín., fer eftir stærð. Gott er að setja 2-3 fetaostbita og strá dukkah yfir hverja bringu í lokin á eldunartímanum og setja grillið á í smá stund (slepptum þessu líka, en ég prufa þetta sko næst). Berið fram með risotto eða ofnbökuðum kartöflubátum (við notuðum kartöflubáta og krydduðum þá með nutmeg, karrý og salti, það var 'bjúttifúll' :-)

Frostungur

1 bolli síróp 2 eggjahvítur 2 tsk sykur (má sleppa) Þeytt mjög vel saman.

Eplakaka nornarinnar

3 stór, rauð epli, afhýdd og skorin í báta 2 dl. Haframjöl 1 dl. Kókosmjöl 1 dl. Hveiti 70-100 gr. Smjör Slatti Kanelsykur 200 gr. Ljóst súkkulaði 100 gr. suðusúkkulaði Möndlur má nota líka og er þeim þá bætt út í um leið og súkkulaðinu. Hafa skal þær smátt saxaðar líka. Byrjar á því að afhýða eplin, skera þau í bita (ekki mjög smátt þó) og sjóða þau í sykurvatni í 10-15 mín. eða þar til þau eru orðin frekar mjúk. Á meðan saxarðu súkkulaðið mjög smátt. Hrærir hveitinu, smjörinu, haframjölinu og kókosmjölinu saman (smjörið skal vera við stofuhita). Úr því ætti að koma 'deig' sem er mjög laust í sér og molnar auðveldlega. Þegar eplin hafa soðið nóg eru þau sett í eldfast mót og hulin með kanelsykri (eða eftir smekk, mér finnst hann góður svo ég nota mikið). Blandaðu súkkulaðinu saman við 'deigið' og myldu það svo yfir eplin. Settu eldfasta mótið inn í ofn í svona 10 mínútur á 150° c eða þar til haframjölið er farið að gyllast og súkkulaðið er bráðnað. Berist fram ...

Coca-Cola kaka

250 gr Hveiti 1 ½ tsk lyftiduft ½ tsk salt 3 kúfaðar msk kakóduft ¼ tsk matarsódi 280 gr hrásykur 200 gr ósaltað smjör 250 ml Coca-Cola 100 ml mjólk 2 stór egg 1 tsk vanilludropar Hitið ofninn í 180°c og smyrjið 24 cm lausbotna kökuform. Sigtið hveitið, lyfitiduftið, saltið, kakóið og matarsódann í skál og hrærið  hrásykrinum útí. Bræðið smjörið og kókið saman við lagan hita í potti og bætið hægt og  rólega við þurrefnin ásamt mjólkinni, eggjunum og vanilludropunum.  Hrærið stanslaust. Þegar öllu hefur verið blandað varlega saman, hellið í kökuformið og bakið  í 40 mín. Eða þar til að prjónn kemur hreinn úr miðju kökunnar. Látið kólna á ofngrind í 10 mínútur og  takið þá   úr forminu þá og látið kólna betur á ofngrindinni. Kremið: 150 gr ósaltað smjör 50 ml Coca-Cola 3 msk kakóduft 400 gr flórsykur Bræðið smjörið í potti ásamt kókinu og kakó við lágan hita. Sigtið flórsykurinn í skál og hellið smjörblöndunni hægt yfir og hrærið þar  til mjúkt. Smyrji...

Alvöru Amerískar súkkulaðibitakökur

3 og 1/3 bolli hveiti 1 1/2 tsk matarsódi 1 bolli sykur 1 bolli púðursykur 4 egg 2 tsk vanilludropar 4 bollar súkkulaðidropar (eða saxað suðusúkkulaði) 1 1/2 bolli bráðið smjör Allt sett í skál í þessari röð. Leyndarmálið er að hella bráðna smjörinu yfir súkkulaðið svo það bráðni aðeins. Þetta er svo hrært og degið á að verða mjúkt og glansandi og losna frá skálinni. Deigið er sett á bökunarplötu með skeið. Bakist við 190° í 8-15 mínútur. Viðbót: Þessar kökur verða ekki mjúkar eftir bakstur.

Gúllas-súpa

 Klassísk uppskrift af Ungverskri Gúllassúpu. (fyrir 4) 600 gr gúllas 2 msk matarolía 2 shallot laukar, saxaðir 2 hvítlauksrif 2-3 gulrætur, sneiddar 3-4 kartöflur, sneiddar 2 paprikur, litur að eigin vali 1 msk paprikuduft 1 tsk kúmenfræ 1 dós niðursoðnir tómatar, saxaðir 1 msk tómatpúrra salt og pipar eftir smekk vatn Hitið olíuna í potti og glærið laukinn. Stráið paprikuduftinu fyrir og látið krauma í smá stund. Bætið gúllasinu út í og steikið. Leyfið kjötinu að malla í eigin vökva sí smá stund. Setjið hvítlaukinn útí. Malið kúmenfræin og bætið þeim út í ásamt salti og svörtum pipar. Bætið við nægilega miklu vatni til að hylja kjötið og látið malla á lágum hita í 1,5 tíma. Bætið við niðurskornum kartöflum og gulrótum, bætið við örlitlu salti og 2-3 bollum af vatni ef þarf. Sjóðið áfram í 30 mínútur. Bætið við tómötunum, tómatpúrrunni og paprikunni. Látið malla í 10 mínútur í viðbót. Takið lokið af ef súpan er of þunn. Berið fram með sýrðum rjóma og góð...